Friday, March 20, 2009

Watchmen eða watch men?


Fór semsagt að sjá myndina Watchmen í gærkvöldi.
OK, ég hef líklega verið búin að gefa mér eitthvað um myndina og líklega bjóst ég við einhverju í líkingu við X-men eða Iron Man, sem er einfaldlega besta mynd sem gerð hefur verið eftir teiknimyndablaði.
Þvílík vonbrigði.
Það er varla hægt að setja út á kvikmyndatökuna í Watchmen. Hún er næstum heillandi á köflum og allir litir í henni eru mjööög safaríkir... en það var bara ekki nóg.

Í stuttu máli sagt þá var ég farin að geyspa fljótlega eftir hlé og hugsa:
"Ætlar þessu aldrei að ljúka?"
Dr. Manhattan, ein sögupersónan í myndinni, (fyrrum efnafræðiprófessor sem breytist í bláa ofurhetju vegna hræðilegs slyss sem á sér stað á rannsóknarstofu) svaraði þessu fljótt og örugglega fyrir mig:
"It will never end. Nothing ever ends".
Sannari orð hafa varla verið sögð. Myndin er 2 tímar og 40 mínútur!

Litir, swooosh hljóð, ofbeldi og blár nakinn karlmaður náðu meira að segja ekki að halda athygli minni á myndinni.
Ja, sá blái náði reyndar að fanga athygli mína einstaka sinnum, en ef ég á að vera alveg heiðarleg þá var það eingöngu vegna þess að ég hef aldrei séð algerlega nakinn karlmann í amerískri (bíó)mynd ... en líklega hefur þótt í lagi að hafa gaurinn beran þar sem hann var í rauninni ekki maður... og tölvugerður... og umskorinn!!
Já og svo verð ég að bæta því við að ein versta kynlífssena kvikmyndasögunnar er einmitt í þessari mynd.
Ertu enn að spá í að kíkja á myndina? Seriously?!
Hmpf ... fór spæld út og byrjaði strax að telja dagana þar til Terminator mætir á svæðið.
Watchmen er klárlega ein versta mynd sem ég hef séð.

Lag dagsins ... auðvitað lagið sem hljómaði undir kynlífssenunni í myndinni ... það eina jákvæða við senuna. Reyndar er lagið með sjálfum Leonard Cohen í myndinni en mig langar bara til að heyra Jeff syngja það einu sinni enn. Hallelujah.

2 Comments:

At 24/4/09 11:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Hérna er annað lag sem heitir Hallelujah, fallegasta lag sem ég hef heyrt, tárast alltaf þegar ég hlusta á það.

http://www.youtube.com/watch?v=prvvKpuVp_I

kv. Vignir

 
At 27/4/09 1:50 AM, Blogger Tinna said...

hahahahahaaaa

 

Post a Comment

<< Home