Monday, February 02, 2009

Febrúar er frábær

Nú er kominn dásamlegur febrúar. Dásamlegur því hann er stuttur, hnitmiðaður og byrjar á f.
Ég er komin heim eftir hreint út sagt frábæra helgi í bústað (piparsteik, snjór, grillhús, súkkulaði, flakkari, æði) og á morgun byrjar ný vinnuvika með áframhaldandi þýðingum, tölvupikki og undirbúningi fyrir félagasýningu.

Já, alveg rétt, ég er í sýningarnefnd Myndlistarfélagsins og mun því taka við fyrirspurnum varðandi sýninguna (email og sími) - öllum félagsmönnum er velkomið að taka þátt í sýningunni ... muna bara að koma með verk í Boxið á fimmtudag því að sýningin er á laugardaginn.

Hmm... hvað meira ... já, þessir herramenn eiga báðir afmæli þann 2. febrúar. Þeir eru báðir þekktir hvor á sínu sviði. Annar sem listmálari en hinn sem vélmenni sem þráir ekkert heitar en að verða maður. Til hamingju með daginn Jónas Viðar og Data ... að vísu eru þó nokkur ár í að sá síðarnefndi fæðist en skráður fæðingardagur er 2. febrúar 2338.




Svo get ég ekki stillt mig um að láta eftirfarandi sögu fylgja með - og hún er sönn.

Kona ein kom heim og sá eiginmann sinn í eldhúsinu í áköfum krampaköstum. Hún sá það sem virtust vera tveir vírar sem lágu frá mitti hans og í átt að hraðsuðukatlinum. Hún greip spýtu sem var við hurðina með það í huga að koma manni sínum til bjargar frá hinu banvæna rafmagni og sló kröftuglega í hann svo hann tvíhandleggsbrotnaði. Fram að þessari stundu hafði hann verið alsæll í eigin heimi að hlusta á ipoddinn sinn.

Lag dagsins er lagið sem var á toppi vinsældarlistans í Bretlandi daginn sem Jónas varð sautján ára - Heart of Glass með Blondie.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home