Wednesday, March 19, 2008

Jæja ...

... þá eru öll próf næstum því búin. Eitt sjúkrapróf eftir í maí. Vonandi ekkert upptöku- próf.

Núna er ég að undirbúa brottför - er að fara til Spánar á laugardaginn að tékka á stöðunni. Erum að fara nánar tiltekið til La Marina (rauði hringurinn á kortinu hér fyrir ofan) - aðeins 20 mín. akstur frá Alicante. Ég og Eiríkur að fara að skoða skóla fyrir okkur öll, tala við fólk og fá upplýsingar. Svo, ef okkur líst vel á þetta, flytjum við suður á bóginn í haust. Jesús!

Lag dagsins: Hips again með Bloodgroup ... mér finnst þetta hrikalega flott lag og get ekki hætt að dilla dilla mjöðmum þegar ég hlusta á það!

Hola!

3 Comments:

At 19/3/08 1:52 PM, Anonymous Anonymous said...

Á Spáni er gott að ...... Ég VEIT að þið munið hafa það gott í fríinu, ekki vafi. Gleðilegt og sorglegt í senn að lesa um skólapælingarnar, gleðilegt því þar opnast nýr heimur fyrir ykkur og sorglegt því þið verðið svo langt í burtu snufff snufff... Góða ferð ef ég næ ekki á ykkur fyrir laugard. Kv affí

 
At 20/3/08 5:18 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með það!

Þetta lag hér á þá mun betur við :-)

Kveðja,
Balli

 
At 21/3/08 2:29 AM, Blogger Tinna said...

Affí: takk fyrir sæta mín - ég kíki á þig um leið og ég kem heim aftur.

Balli: Þetta er einmitt lagið sem ég er sífellt með á heilanum þegar ég er á Spáni! Gott að taka forskot á sæluna ;)

 

Post a Comment

<< Home